Beint á leiðarkerfi vefsins

Atvinnuleysisbætur

Atvinnuleysisbætur skiptast í grunnatvinnuleysisbætur og tekjutengdar atvinnuleysisbætur

Grunnatvinnuleysisbætur:
  • Eru greiddar fyrstu 10 virku dagana í atvinnuleysi.
  • Grunnatvinnuleysisbætur eru 149.523 kr. á mánuði (miðað við 100% bótarétt og 21,67 daga sem er meðalmánuður).
  • Grunnatvinnuleysisbætur eru 6.900 kr. á dag fyrir 100% bótarétt.

Tekjutengdar atvinnuleysisbætur:

  • Taka við af grunnatvinnuleysisbótum í allt að þrjá mánuði en eftir það eru grunnatvinnuleysisbætur greiddar á ný.
  • Hámarksfjárhæð tekjutengingar er 242.636 kr. á mánuði.
  • Tekjutenging er reiknuð út frá 70% af meðallaunum á 6 mánaða tímabili sem hefst 2 mánuðum áður en þú sækir um atvinnuleysisbætur.
 
Greiðslur vegna barns eru 276 kr. á dag eða 4% af grunnatvinnuleysisbótum. Greitt er með hverju barni sem er á framfæri umsækjanda upp að 18 ára aldri. Ef einstaklingur greiðir meðlag með barni þá fer greiðslan fyrir barn til Innheimtustofnunar sveitarfélaganna sem greiðsla upp í meðlagið.
 
Ef þú hefur einhverjar spurningar um atvinnuleysisbætur skaltu leita til ráðgjafa á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á þínu svæði -  sjá nánar
 
Sjá nánari upplýsingar um atvinnuleysisbætur á vefsíðu Vinnumálastofnunar

Þú ert hér:

Atvinnumissir » Atvinnuleysisbætur

Toppmynd

Menntatorg

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré