Beint á leiðarkerfi vefsins

Greiðslur atvinnuleysisbóta

Greiðslur atvinnuleysisbóta fyrir allt landið fara fram hjá:
 
Greiðslustofu Vinnumálastofnunar
Túnbraut 1-3
545,Skagaströnd                                                                                                                             
Sími: 582 4900, bréfasími 582 4920, netfang: greidslustofa@vmst.is
 
 Staðfest atvinnuleit:
 
  • Umsækjendur þurfa að staðfesta atvinnuleit sína mánaðarlega frá 20. - 25. hvers mánaðar til að tryggja greiðslur um mánaðarmót.
  • Staðfestinguna er hægt að framkvæma rafrænt hér eða með því að hringja/koma á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. 
Þeir sem hafa haft tilfallandi vinnu eða eru í hlutastörfum þurfa að skila inn launaseðlum fyrir 19. hvers mánaðar.
 
Til að fá skattkort send til baka: Hringið í 582 4900, sendið tölvupóst á greidslustofa@vmst.is eða hafið samband við þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Skattkortið er sett í póst sama dag og eftir því er óskað og kemur til viðtakanda næsta morgun, hvort heldur sem er til umsækjanda eða atvinnurekanda eftir því hvers er óskað.
 
Til að fá upplýsingar um stöðu umsóknar eða greiðslur er hægt að hringja í 582- 4900 eða senda fyrirspurn með tölvupósti.
 

Greiðslustofan er opin frá 09:00 - 15:00 alla virka daga.

 
Staðfesta atvinnuleit rafrænt (frá 20.-25 hver mánaðar)

Þú ert hér:

Atvinnumissir » Atvinnuleysisbætur » Greiðslur

Toppmynd

Menntatorg

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré