Uppsögn
Uppsögn ráðningarsamnings getur verið með tvennum hætti:
-
þú segir upp.
-
þér er sagt upp.
Hvort heldur sem þú segir upp eða þér er sagt upp á uppsögnin að vera:
- skrifleg.
- miðast við mánaðarmót.
- með uppsagnarfresti.
| Ef þú segir upp færðu ekki atvinnuleysisbætur fyrr en að tveimur mánuðum liðnum nema þú getir sýnt fram á að þú hafir haft gilda ástæðu til að segja upp starfinu. Vinnumálastofnun metur hvað telst gild ástæða. Undir vissum kringumstæðum getur biðtíminn orðið 3 mánuðir ef þú hefur sagt upp án gildrar ástæðu. | |
| Ef þú telur ástæðu til að kæra mat eða úrskurð vegna uppsagnar þinnar notar þú sérstakt eyðublað fyrir kæru til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða. Ef þú ert í stéttarfélagi getur þú leitað á skrifstofu þess eftir aðstoð. | |
| Nánari upplýsingar um uppsögn finnur þú t.d. á vef Alþýðusambands Íslands. |
Leit
Toppmynd











