Önnur námskeið
| Ef þú hefur hugmynd um námskeið sem þú myndir gjarnan vilja sækja þá skaltu hafa samband við ráðgjafa hjá þjónustumiðstöð Vinnumálastofnunar og kynna honum hugmyndir þínar. Ráðgjafi metur hvort námskeið, sem þú stingur upp á, nýtist þér beint við atvinnuleit og uppfylli skilyrði fyrir undanþágu um nám sem hægt er að stunda samhliða atvinnuleysisbótum. Eftirfarandi dæmi eru um stofnanir og fyrirtæki sem halda námskeið í samstarfi við Vinnumálastofnun: |
Önnur námskeið sem styrkja fólk á vinnumarkaði að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar koma einnig til greina. Kannaðu hvort eitthvert þeirra veki áhuga þinn. Ef þú hefur sérstakan áhuga á tilteknu námi eða námskeiði sem þú telur gott vinnumarkaðsúrræði skaltu benda ráðgjafa Vinnumálastofnunar á það.
Hér er hægt að sækja lista með námskeiðum sem ráðgjafar Vinnumálastofunar hafa haldið auk annarra námskeiða sem Vinnumálastofnun heldur í samstarfi við aðra á haustönn 2010. Sækja listann
Hafa samband við þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar
Leit
Toppmynd











