Beint á leiðarkerfi vefsins

Get ég sótt nám á atvinnuleysisbótum?

Ræddu við ráðgjafa á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar ef þú vilt stunda nám jafnframt því að fá atvinnuleysisbætur. Skilyrði fyrir námi á atvinnuleysisbótum eru m.a. að:
 
  • þú hafir starfað á innlendum vinnumarkaði samfellt á síðustu tólf mánuðum áður en þú sóttir um atvinnuleysisbætur.
  • færni þín og staða hafi verið metin meðal annars til að auðvelda markvisst val á námi.
  • ráðgjafi Vinnumálastofnunar telji ekki líklegt að þér verði boðið starf á næstu vikum.  
  • þú hafir gerir námssamning við Vinnumálastofnun þar sem þú skuldbindur þig að stunda námið að fullu og hafa regluleg samskipti við ráðgjafa Vinnumálastofnunar á gildistíma námssamningsins.  
  • nám og námskeið séu skilgreind sem vinnumarkaðsúrræði skv. reglugerð, sjá nánar hér.
  • námið sé hvorki lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna né nám á námsbrautum til stúdentsprófs í framhaldsskóla.

Á grundvelli sérstaks mats er Vinnumálastofnun heimilt að veita undanþágur frá reglugerð ef þú:

 
  • heldur áfram námi sem þú stundaðir samhliða starfi sem þú misstir.  
  • stundar nám í kvöldskóla eða í fjarnámi sem er ekki lánshæft hjá LÍN eða stundar 1/3 af fullu almennu bóknámi á framhaldsskólastigi.  
  • stundar lánshæft nám sem nemur 3-6 einingum (6-12 ECTS) með hliðsjón af reglum LÍN um lánshæfar einingar.  
 

Verklagsreglur Vinnumálastofnunar um nám samhliða atvinnuleysisbótum

Reglugerð um nám og námskeið sem eru viðurkennd vinnumarkaðsúrræði 

 
Hafa samband við þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar

Þú ert hér:

Námsúrræði » Námsskilyrði

Toppmynd

Menntatorg

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré