| Veistu um fyrirtæki eða stofnun sem eru reiðubúin til að gera samning við Vinnumálastofnun um frumkvöðlastarf? Frumkvöðlasamningur gengur út á að ráða starfsmenn til að starfa við nýja viðskiptahugmynd, svo sem nýsköpunarverkefni eða vöruþróunarverkefni, sem felur ekki í sér röskun á samkeppni. |
| |
|
Skilyrði fyrir frumkvöðlasamningi er meðal annars að:
|
| |
- Nýsköpunarmiðstöð Íslands votti um nýsköpunarvægi verkefnisins samkvæmt nánari reglum þar um.
|
- verkefnið sé til þess fallið að veita þér framtíðarstarf að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar.
|
- Vinnumálastofnun, fyrirtæki eða stofnun og þú undirriti samning.
|
- fyrirtækið eða stofnunin skuldbindi sig til að ráða þig, sem átt rétt á atvinnuleysisbótum, til starfa við þróun nýrrar viðskiptahugmyndar í allt að sex mánuði.
|
- fyrirtækið eða stofnunin skuldbindi sig til að greiða þér laun samkvæmt ákvæðum gildandi kjarasamnings.
|
- Vinnumálastofnun skuldbindur sig til að greiða til fyrirtækisins eða stofnunarinnar atvinnuleysisbætur sem þú átt rétt á auk 8% mótframlags í lífeyrissjóð.
|
- fyrirtækið eða stofnunin skili framvinduskýrslu til Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands eftir þrjá mánuði og aftur við lok verkefnisins.
|
- ráðning þín feli í sér aukningu á starfsmannafjölda fyrirtækisins eða stofnunarinnar.
|
- Vinnumálastofnun er heimilt að framlengja frumkvöðlasamninginn um sex mánuði að fenginni umsögn Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.
|
| Starfsorka |
|
Starfsorka, er samstarfsverkefni Vinnumálastofnunar og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands/Impru. Forsendur fyrir þátttöku eru meðal annars að:
|
| |
- um starfandi fyrirtæki sé að ræða og velta síðasta árs sé 5 milljónir eða meira.
|
- eitt eða fleiri stöðugildi séu nú þegar í fyrirtækinu.
|
- veruleg nýsköpun/þróun sé í því verkefni sem atvinnuleitandi er ráðinn til.
|
- atvinnuleitandi eigi rétt á atvinnuleysisbótum.
|
- atvinnuleitandi sé í virkri atvinnuleit og á skrá hjá Vinnumálastofnun.
|
| |
| Ráðningarsamningur vegna frumkvöðlastarfs. |
| 8. grein reglugerðar 12/2009 um frumkvöðlastarf innan fyrirtækis eða stofnunar. |
|
Sjá nánari upplýsingar um Frumkvöðlastarf - Starfsorku á vefsíðu Vinnumálastofnunar.
|
| |
| Hafa samband við þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar |