Beint á leiðarkerfi vefsins

Sérstök átaksverkefni

Fyrirtæki, stofnanir eða frjáls félagasamtök eiga kost á því að gera samning við Vinnumálastofnun um að ráða atvinnuleitanda til að sinna sérstökum tímabundnum átaksverkefnum.
 
Á meðal skilyrða fyrir styrkhæf átaksverkefni er að:
 
  • verkefnið skal vera unnið innan umdæmis vinnumálastofnana um landið.
  • ráða skal vinnuafl af atvinnuleysisskrá í umdæmi viðkomandi vinnumálastofnunar.
  • verkefnið má ekki vera í samkeppni við aðila í hliðstæðum atvinnurekstri.
  • samningur sé gerður að hámarki í 6 mánuði og óheimilt að framlengja vegna sama atvinnuleitanda.
  • að ráðning atvinnuleitandans feli í sér fjölgun starfsmanna.
  • að atvinnuleitandi verði í reglulegum samskiptum við ráðgjafa Vinnumálastofnunar án þess þó að vera í virkri atvinnuleit á sama tíma.
Vilt þú vinna fyrir fyrirtæki, stofnun eða frjáls félagasamtök að sérstöku átaksverkefni á meðan þú ert á atvinnuleysisbótum? Mikilvægt er að þú hafir frumkvæði á því og hafir samband við viðkomandi félagasamtök, stofnun eða fyrirtæki sem síðan leita til Vinnumálastofnunar.
 
Umsóknareyðublað fyrir átaksverkefni
Ráðningarsamningur fyrir átakverkefni
9. grein reglugerðar 12/2009 um sérstök átaksverkefni
Sjá nánari upplýsingar um sérstök átaksverkefni á vefsíðu Vinnumálastofnunar
 
Hafa samband við þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar
 

Þú ert hér:

Önnur úrræði » Sérstök átaksverkefni

Toppmynd

Menntatorg

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré