| Fyrirtæki eða stofnanir geta gert samning um starfsþjálfun. Skilyrði fyrir gerð starfsþjálfunarsamnings eru meðal annars að: |
|
| |
|
- Vinnumálastofnun geri starfsþjálfunarsamning við fyrirtæki eða stofnun.
|
|
- samningurinn leiði til þess að starfsmönnum fjölgi.
|
|
- atvinnuleitandi hafi ekki áður starfað í starfsgreininni eða lengri tími en eitt ár er liðinn síðan hann lét af störfum í starfsgreininni.
|
|
- samningurinn sé að hámarki til sex mánaða og óheimilt að framlengja hann vegna sama atvinnuleitanda nema atvinnuleitandi hafi skerta starfsorku og nauðsynlegt sé að veita honum lengri tíma til endurhæfingar að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar.
|
|
| Ef þú ert atvinnulaus og þér sýnist að þetta úrræði komi til greina skaltu óska eftir ráðleggingum og aðstoð ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Myndir þú vilja leita að fyrirtæki eða stofnun til að gera samning um starfsþjálfun? Ræddu við ráðgjafa áður en þú ferð að leita. |
|
| |
|
| Starfsþjálfunarsamningur |
|
| 3. grein reglugerðar 12/2009 um starfsþjálfunarsamning. |
|
| |
|
| Hafa samband við þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar |
|